Klukkan mun núna vera eitt eftir miðnætti, dagurinn 26. maí er að renna í garð og Karitas er að prufa að skrifa post á nýju blogg síðuna sína. Blogg síðuna sem gerð var aðalega með elskulegu móður Karitasar (nei hún mun ekki alltaf tala um sig í 3. persónu.. eða hver veit, það gæti verið áhugavert. Komin út fyrir efnið, anywho) í huga, svo móðir hennar (og auðvitað allir aðrir sem viljandi eða fyrir tilviljun rekast inn á þessa síðu) geti fylgst með ferðum hennar út í hinn stóra heim þar sem Karitas heimsækir hvorki meira né minna en "Land hinna frjálsu og heimili hinna hugrökku" og mun þar dvelja næstu tvo mánuðina frá og með deginum 28. maí, sem sagt samkvæmt dagatali eftir tvo daga, wáw.Þetta á nú ekki að vera langt þar sem Karitas er enn að læra inn á þessa ó svo sniðugu síðu sem fyrir einhverja ástæðu var til áður en Karitas bjó hana til. Meikar þetta sens? Nei það heldur Karitas ekki og hún ætlar ekki út í útskýringar, þess í stað kveður hún að sinni.
1 comment:
Þetta er mjög svo frjó og frumleg byrjun á þessari skemmtilegu síðu sem mun eflaust þjóna tilgangi sínum og upplýsa mömmu gömlu um öll ævintýrin þín í hinni miklu víðáttu í villta vestrinu :)
Góða skemmtun :)
Post a Comment