Saturday, July 11, 2009


Vegna þess að það er svona líka gífurleg hreyfing og aðsókn á þessa síðu ákvað ég að henda inn örfáum orðum.

Í gær, kl hálf fimm var ákveðið að skreppa til Washington DC, ekki slæmt, nema hvað það tekur tvo tíma að keyra þangað. Ekki skárra að klukkan sé um fimm leytið þegar allir eru á leið heim úr vinnu. Allavega, við komumst á leiðarenda og reyndist þetta vera hinn fínasti bíltúr.

Í DC sáum við þetta hefðbundna, keyrðu fram hjá The Capitol Building, stoppuðum svo hjá Hvíta Húsinu og tókum örfáar túrista myndir, því næst var keyrt til Lincoln Memorial, þar sáum einnig Washington Memorial - það sem er alltaf í myndunum með vatninu!? Ekki? Þar hjá sáum við svo minnisvarða um Víetnam stríðið og Kóreu stríðið. Það var orðið svoldið dimmt þegar við sáum tvo síðari nefndu minnisvarðana en samt sem áður mjög, töff er ekki orðið sem ég er að leita að, en samt svoldið töff? Allavega, mjög áhrifaríkir. Minnisvarðinn frá Víetnam stríðinu var ótrúlega langur veggur með hvorki meira né minna en 63.000 höggnum nöfnum í sem eru nöfn þeirra sem létu lífið í stríðinu.

Loks var keyrt heim, já, sama kvöldið. Við komum þó ekki allt of seint heim en allir uppgefnir sam sem áður. Alls ekki verra að þurfa svo að vakna kl 7 í morgun til að fara með Bryant í Scout's Camp, maður fær ekki nóg af útilegum og skátunum skal ég ykkur segja.

Í dag fóru svo systir Brent og börnin hennar svo við erum bara 8 eftir í húsinu.

Allavega, stuttur texti, smá uppfærsla.

Njótið vel og lengi, fáið ykkur kókómjólk.

Karitas

2 comments:

icelandarts said...

Alltaf gaman að lesa bloggin þín þegar ég hef tækifæri til þess. Gaman að heyra að þú sást Vietnam Memorial, þar einhvers staðar á meðal er nafn á a.m.k. einum ungum frænda okkar sem lét lífið í Víetnam.
Meira um það seinna yfir kleinu og kókómjólk. Make music not war!

Mamma said...

Þessi bíltúr hefur verið vel nýttur þó stuttur væri. Flottar myndir inni á facebook :D