
Tvær ferðir í Chocolate World á tveim dögum, toppið það!
Um hádegið var ferðinni haldið á Five Guys, sem mun vera veitingastaður, með Spencer og Aaron. Á staðnum tóku þeir auðvitað ekki íslensku debetkorti svo þeir hentu mér út, hvað er það dónalegt? Glens, en afgreiðslukonan skrifaði matinn á sitt nafn og sagði mér að ég gæti hlaupið út í Target í hraðbanka og ef þar væri enginn hraðbanki, gæti ég bara borgað einhverntíman. Eins og hver annar Jói hefði gert tók ég matinn og hljóp út.
iiiiii, auðvitað ekki. Auðvitað kláraði Karitas matinn sinn, skaust í Target, tók út pening og borgaði gömlu. En vittu til, margur hefði nýtt sér tækifærið og svindlað á vesalings konunni *gefkaritasklappábakið*.
Á leið okkar frá staðnum var ákveðið að halda skyldi til Chocolate World og kíkja á Chocolate Tour-inn, sem er frír notabene, en hver og einn fær súkkulaðistykki í enda hans. Ekki slæmt það. Vandræðalegt að segja frá því en þetta mun hafa verið þriðja skiptið um borð þessarar ferðar.
Um eftirmiðdaginn var ákveðið að kíkja á bókasafnið þar sem gamla tók sér að sjálfsögðu bók og fáeina geisladiska. Leigja sér geisladiska, en hví? Afhverju ekki spyr ég þig?
Í kvöld var planið síðan að fara í Hershey Park, þar sem hver miði gildir kvöld og síðan heilan dag. Við græddum þó því miður lítið á þessu kvöldi. Öllum rússíbönum var lokað, við náðum að fara í tvö tæki og náðum 1/8 af sýningu. Hví? Vegna ofurbrjálaðs þrumustorms, við gengum út og rigninginn dundi eins og hún ætti lífið við að leysa og eldingarnar blossuðu við undirleik yfirgnífandi þrumna. Án gríns mátti heyra fólk æpa við lætin á hlaupum sínum úr garðinum. Svo eins og ég segi, það varð lítið annað úr þeirri ferð en gegnvot föt og hrædd lítil börn.
Spurning hvort morgundeginum verði eytt í garðinum, ætli við verðum ekki að sjá til hvernig veðrið ákveður að vera.
Í gær var deginum meira og minna eytt í einmitt, Chocolate World, vandræðalegt. Þar var farið á þessa líka mögnuðu 3D eiginlega samt 4D bíómynd þar sem sætin hristust, sápukúlur blésu og kossum varpað upp á veggi. Vatni var spreyjað í andlit hvers og eins og vindur kom undan sætunum og blés á fætur manna. Eftir það var farið í vagn sem tók okkur á helstu staði Hershey, auðvitað var gefið súkkulaði sýni í vagninum, en ekki hvað? Fremst í vagninum voru leiðsögumenn/leikarar sem sögðu frá, léku, sungu og hvaðeina. Vissuð þið að S-ið í Milton S. Hershey stenur í raun fyrir Snavely, hvað er það hrikalega ljótt nafn? Einnig var okkur sagt að hann fór á hausinn fjórum sinnum, ef ég man rétt, áður en hann kom fyritæki á fæturna og það var karamellu fyrirtæki? Eitt annað ofurmagnað sem við fengum að vita og það er að Milton S. Hershey og konan hans áttu að vera um borð á Titanic en vegna vandræða í vinnu hans varð hann að koma heim fyrr. Hvað hefði þá orðið um heim súkkulaðis!? Ó sei, ó sei, þetta mun aðeins vera hluti þess fróðleiks sem fyrir okkur var komið. Vitið til, ég mun vera Hershey sérfræðingur þegar ég loks kem heim, sem mun bara vera eftir um það bil 27 daga kæri lesandi. Þá mun þér vera frjálst að spyrja mig spjörunum úr í sambandi við Hershey súkkulaði, Milton Snavely (greyið) Hershey og hvað þér dettur í hug. Samt ekki í alvöru.
Ég get, get, get ekki beðið eftir því síðan að borða góðan fisk og heimalagðan mat. Komið svoldið gott af forhituðum og innpökkuðum mat. Hvað verður eiginlega gott að fá mömmu mat! Ég skal svara því, uu bara best. Spennandi.
Kossar og knúsar til allra í geiminum, samt mest til þeirra sem ég þekki og ég býð hér með góða nótt, en líklegast góðan daginn þegar þetta fer þér, ágæti lesandi, fyrir augum.
Karitas
3 comments:
Gaman að vita að við fáum heim sérfræðing í súkkulaðimálum og öllu því sem tengist Hershey fyrirtækinu ;Þ Annars segir Wikipedia að þau hafi ekki farið á Titanic af því að konan hans var veik... hmmm hver ætli viti betur..... Wikipedia eða Hershey fyrirtækið. Góð spurning, spurðu í NÆSTU ferð þinni í Chocholate World. :D
Skooooooo, þau voru að ferðast út um allt útaf því hún var veik og þeim sagt að það myndi létta lund hennar að ferðast. Síðan voru þau á leið sinni aftur til baka til Hershey og ætluðu þá með Titanic nema hvað hann fékk hringingu og þurfti að fara tafarlaust heim, hann var að sjálfsögðu svekktur yfir því sérstaklega þar sem hann gat ekki fengið endurgreidda 3-400 dollara fyrsta farrýmis miðana sína. Tjah, þetta var það sem mér var sagt að minnsta kosti, segðu svo að maður hafi þetta ekki á hreinu.
veeei 27 dagar, spennandiii!! :D
mmm... súkkulaði er svo gott. njóttu þess að borða það á meðan þú getuuur ::)
Kossar og knús til þín :)
Post a Comment