Tuesday, June 30, 2009

Svo mikil synd.
Enginn meiri Michael Jackson.

Allavega, 29. júní í dag, heimkoma 29. júlí. Alls ekki svo mikið eftir, tíminn flýgur líkt og skutla á heitum sumardegi. Nei?

Dagurinn fór í að gera húsið boðlegt fyrir systur Brent og börn hennar. Tekið var til líkt og skrattinn væri á hælum vor, mottur, púðar, stólar og gólf þrifin. Glös, diskar og börn sett á réttan stað. Tónlist sett á fóninn, sjáðu, þetta er sæti róninn. iii, rím!

Upp úr 7, um kvöldið, mætti systirin. Hún ásamt fjórum krökkum, þau munu víst vera hérna í tæplegar tvær vikur. Fínt að fá aðeins fleira fólk þar sem það voru nú svo fáir í húsinu til að byrja með. Húsið mun sem sagt halda 12 manns næstu tæpar 2 vikur sem er ekkert lítið en ég er svo sannarlega þakklát fyrir það, það þýðir að Karitas verður ekki aðal klifrugrindin næstu dagana. Ég kvarta ekki, en við sjáum auðvitað til hvernig þetta fer. Þetta þýðir einnig að meira verður ferðast hér í kring, Hershey Park á næsta leiti og bara gaman.

Ég reyni og reyni að finna eitthvað sniðugt til að blogga um en þau enda meira og minna á *fleh-i*.

Rétt í þessu komu Lindsey og Audrey. "Karitas, Karitas, we found Bob." Ég opnaði hurðina mína og þær héldu á eldflugu. Ég vil enga eldflugu í herbergið mitt takk fyrir, það restaði með því að Bob fór aftur til síns heima. Skinnið.

Hvað meira, hvað meira.

"I don't know and I don't care if grandma wears pink underwear."
- Audrey

Ég hef ekkert að segja. Aldrei þessu vant finn ég engin orð.

Þess í stað ætla ég að semja ljóð.

Hún finnur ei þau réttu orð
þess í stað hún semur ljóð.
Flýr svo undir stálsteypt borð,
heitt og þreytt. Hún verður rjóð.

Tuttugu og níu dagar,
þrjátíu og tíu magar.
Nítjánhundruð grænir skagar,
þetta ljóð, hann Fúsi lagar.

Megið þið hafa það gott og sjáumst að sinni.

Karitas

1 comment:

Mamma said...

Svei mér þá, þú ættir að safna þessum ljóðum saman og gefa út ljóðabók. Vissi ekki að þú ættir þetta í þér :)