Tuesday, June 09, 2009


Ég elska hvað Stína er orðin vinsæl. Það hefur ekki verið ein manneskja sem minnist á bloggið mitt, síðan þetta blogg var skrifað, sem minnist ekki á Stínu. Hún er ofur. Ofur-Stína!

Karitas hefur verið heldur léleg að blogga síðustu daga enda kannski ekkert allt of mikið sem hefur skeð. Garðvinna hefur verið ofarlega í verkum en hver haldiði að hafi bakað í dag í nokkra tíma! Sheri bað mig að baka súkkulaðibitakökur, jújú, ég hélt nú að ég gæti það svo við fundum uppskrift á netinu sem leit ágætlega vel út og átti að skila af sér held ég 5 dozens sem myndi vera 5*12 ekki? Jæja, eins og ég segi þá leit það vel út þar sem við erum að fara í eitthverst surprise picnic á morgun nema hvað gamla sagðist vilja eiga auka til að geta skellt í ofninn fyrir sumarið, önnur picnic sem sagt, svo Karitas var látin fjórfalda uppskriftina. Vitiði hvað það er mikið?! Já, fjórum sinnum venjuleg uppskrift! Það myndi vera 4*5*12 sem gera margar kökur!

Lindsey, sú sem er fimm ára hefur verið dugleg að segja mér að ég þurfi að eignast fleiri vini. Á sunnudaginn fórum við á kvöldvöku úti í kirkju sem er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað að það er þessi stelpa sem hún vill svo að verði vinkona mín, jújú ágætis stelpa sú, en Lindsey er sannfærð um að það sé eina stelpan sem ég hef kynnst so far, sem ég vil leiðrétta hér og nú að er ekki satt. Eníhú, ég er að tala við einhverja krakka, Lindsey sér það og Lindsey segir hátt og snjallt, himinlifandi: "Karetas! (af því þannig segir hún Karitas) So now you have two friends!?" Alveg einstaklega ánægð en bætir svo við: "You have to go make more friends Karetas." Já, takk Lindsey yndislega litla stelpa, aðeins hærra kannski? Jájá, þetta var kannski ekkert skemmtilegt að segja frá, en ég er uppiskroppa með hluti að segja frá. Hef því miður ekki lent í fleiri Stínum nýlega. En þetta er greinilega nógu skemmtilegt til að þú kæri lesandi heldur áfram að lesa, aha!

Í dag fór ég samt sem áður á rooosa góðan stað, Neato Burrito, með tveim AF þeim krökkum sem ég hef kynnst hér. (Efast ekki um að Lindsey sé ánægð með afrakstur minn). Gaman að segja frá því að þau eru bæði alveg einstaklega miklir aðdáendur Sigur Rós og Íslands yfir höfuð svo við sátum á staðnum í um tvo tíma bara að spjalla. Ég held samt sem áður án gríns að ég gæti fellt gamla konu og sagt þeim að þannig gerði maður á Íslandi og þeim þætti það ofur. Kannski ekki alveg. Allavega eru þau alveg ótrúlegal nice.

Í kvöld settumst við Sheri svo niður og horfðum á myndina "State Fair". (Þar sem Brent er í Florida útaf vinnunni sinni. Hvað er það allt allt of gott. "Æj, ég þarf að skreppa til Florida í þrjá daga og eyða þeim í Disney World og Universal Studios fyrir vinnuna." Greyið þú, ég fæ að steikja franskar og afgreiða kjúkling í minni, feis!) En sem sagt þessi mynd er frá hvorki meira né minna en árinu 1945. Ég gat ekki annað en brost/brosið/brosað þegar ég horfði á myndina. Afhverju eru ekki lengur gerðar svona ofur einfaldar og saklausar myndir og afhverju eru þær ekki nóg í dag? Þetta var einfaldlega svo krúttlegt að horfa á, leikararnir léku líka svo einstaklega einstaklega eitthvað og allt svo óraunverulega raunverulegt? Eitthvað. Ég hef ekki einu sinni orð til að lýsa, haha.

Allavega þá er þreytan greinilega farin að segja til sín en mig langar að deila með ykkur brandara sem ég fékk þann heiður á að heyra djöst ðí öðer dei.

"What's a tissue's favorite dance?"

-

-

-

"The boogie"


Iiiiiii!

Ps. Ekki hika við að skrifa línu eða tvær, jafnvel bara orð eða þessvegna staf, í comment bara svona til að láta vita af þér/ykkur/Mel Gibson. (Iiiiii, þú hélst að á hann yrði ekki minnst!) Því það er bara gaman, þ.e.a.s. að lesa comment-in.

Pps. Ljósmyndir eru í söfnun svo vonandi verður fljótlega einhverjum hent inn á facebook. Stei túned!

Ppps. Ég bið að heilsa öllum og skila kveðju til allra sem ég þekki, eða bara heimsins! Hæ afi, Ellý!

Pppps. Ég vildi bara skrifa annað ps.

Ciao amigos, buenos noches.

Karitas

5 comments:

Mamma said...

Það er ekki af þér skafið, alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín. Ég vona að þú farir nú bráðum að uppfylla óskir hennar Lindsey og kynnist meira en 2 fólkum (haha)

Þú ættir kannski að bjóðast til að vera töskuberinn hans Brents í þessum ferðum :) Gæti verið þess virði.

Hlakka svo til að sjá fleiri myndir og ég er ekki frá því að hárið sé að nálgast upprunalegan lit!!!!

kveðja úr hinu fyrirheitna landi.

Unknown said...

Hey! eru myndir af súkkulaðiljósastaurunum?:D

Anonymous said...

Hæ sæta! Kvitt kvitt. Gaman að geta fylgst með þér. Hvað ertu annars að gera þarna úti og hvernig þekkiru þessa fjölskyldu? Flott hjá þér að gera eitthvað svona skemmtilegt ;)
Stórt Kram Silja Bára

Regína [= said...

Dude.. Er búin að lesa öll freaking bloggin þín og ég var orðin svolítið pirruð á því afhverju það væri ekki svona "gestabók" eða eitthvað til að commenta. Og svo eiginlega fattaði ég að það væri sniðugt að lesa smáa letrið 'Fail' xD
Anywho, love you and hope you have a blast. *BOOM*
Oh, and ps. Sakna þín :D

Laufey said...

hahahha, gott hjá þér Karitas að eiga 2 vini, haha mér fannst þetta alltof fyndið að hún hafi sagt þetta hátt. :D ég hló upphátt!

sakna þín:) ég var að senda þér tölvupóst sem þú kíkir kanski á við tækifæri og sendir mér svar og hugmyndir kanskiii:)
Love Laufey