Allavega þá ætla ég mér að gerast svo kræf að setja atburði síðustu daga upp í einskonar stikk- (stykk?) orðum.
Ég komst loksins aðeins í búðir sem var rosa fínt. Fór meðal annars í uppáhalds búðina mína Bath and Bodyworks, elska þessa búð! Ekki er bara gaman að versla þar heldur var Útsala svo ég fékk vörur á svona 4000 kall sem hefðu verið rúmlega 10þús á Íslandi, amk. Ekki slæmt.
Í gær fór ég á eitthvert Family Farm Days þar sem ýmislegt var að sjá takk fyrir, allt frá beljum til Amish fólks. Já, þú last rétt! Amish! Sá meira samt um Menonite-a sem eru ekki eins strangir og Amish-arnir en ég sá svo sannarlega líka glugga í Amish fólk, mér finnst Amish svo töff. Ég komst samt að því í dag, þegar ég fór til Lancaster sem er rosa þekkt fyrir Amish, að Amish eru ekki allir eins og þeir eru séðir og hana nú! Ég hélt að þeir notuðu ekki rafmagn og fleira á þeim nótum, en hvað haldiði að ég hafi séð í farþegasætinu í bíl við hlið okkar bíls í Lancaster? Amish karl! Þá komst ég að því að þeir keyra sko ekki bíla en sitja samt sem farþegar í þeim? What? Ekki nóg með það, þá sá ég Amish konu húkka far! Þá hélt ég nú að ég fengi að vita að himininn væri í raun rauður og ég bara með annað augað. *Karitashnussar* (Eins og sjá má á myndinni borða Amish víst líka sleikjó).
Í gær fór ég e
Jæja, já, í Lancaster fórum við svo á stað sem heitir held ég Bird-in-hand restaurant eða eitthvað og fórum þar á all you can eat buffey, sem ætti náttúrlega að vera bannað með lögum. Ég hélt ég myndi deyja. Ég myndi telja það upp fyrir ykkur ef mér finndist súpudiskur, tveir diskar af mat, tveir diskar af salati, rúmlega 2 kökusneiðar með karamellusýrópi og tveir crap-ar annar með ís, ekki of mikið til að segja landsmönnum. Vandræðalegt, ein sem tók all you can eat aðeins of bókstaflega. Eins gott ég var ek
Einnig fórum við á Amish safn sem var mjög áhugavert, þar komst ég að því að Amish fólk notar líka ískápa, þeir eru bara power-ed by eitthvað annað og þeir eru einnig með vaska með rennandi vatni í. Spáðu í því! Á efstu hæðinni þar var líka gömul 'prentsmiðja' þar sem kort af Bandaríkjunum og heiminum voru þar sem fólk pinnaði á staðinn sem það var frá. Þar var enginn pinni á Íslandi fyrir heimsókn okkar en er við kvöddum staðin var svo sannarlega pinni á Íslandi! Við fórum líka í einhvern úti búða-markaðsstað, það var bara subbulegt. Einn af þessum stöðum sem þú labbar "inn í" (set gæsalappir þar sem þetta var aðeins þakið nokkrum járnstöngum með einverjum dúk yfir) og þér finnst þú bara verða skítugur á að vera þarna. Ryk og sandur á öllu og bara rugl.
Jæja, þetta urði aðeins fleiri orð en örfá stikk- (stykk) orð. Hey, já, um daginn fór ég í ehv surprise PicNic fyrir eina gellu sem er að flytja eitthvert í burtu og þar var ein kona sem á mann, já hún á mann, en hann er enginn venjulegur maður skal ég segja þér, hann er umboðsmaður The Killers! Þegar þeir eru að tour-a hér nálægt eru þau bara ehv í chillinu með The Killers! Hvað er það allt allt of töff? "Við hvað vinnur pabbi þinn?" "Æj, hann er bara ehv umboðsmaður The Killers."
Ætli ég fari ekki að klára þetta. Er síðan búin að safna um 200 myndum, er alltaf að segj
Mel er kominn svo ég verð að kveðja (Gibson sko ef þú varst ekki alveg viss).
Sjáumst að sinni,
kveður Karí.
Í húfunni minni
og bláum sarí.
Ljóð, en gaman!
Getraun! Hvað ætli ég hafi skrifað Amish oft í þessu bloggi? Amish, Amish, Amish...
Karitas
3 comments:
Ég elska bloggin þín! Þau eru ótrúlega frumleg og frábærlega skemmtileg. Ég hafði sko ekki hugmynd um að þú værir svona góður penni. Heill þér Ritstýra!!!
Gaman að heyra af góðum degi á Amish-slóðum. Megi sem flestir dagar færa þér bros og ævintýri... og mundu að koma heim með súkkulaði-sýnishorn sem ég get stolist í... þó að ég megi það ekki, hehe.. Bara eitt að lokum:
Áfram Karitas!
16 sinnum ? með öllu :D haha
Marín
OMG ÞÚ ERT BÚIN AÐ SJÁ AMISH!!!
hversu töff?
Post a Comment