Thursday, June 04, 2009

Það er alveg klárt mál að framtíð mín liggur ekki í garðyrkju. Verst að það virðist vera aðal áhugamál mömmunnar á heimilinu. Jæja, engu að síður mun unglingavinna 9. bekkjar hafa komið sér að notum þar sem ég tók mig til og reitti arfa eins og enginn væri morgundagurinn fyrr í dag. Reitti hann svoleiðis upp til agna að Tommi Úlló hefði fellt tár af stolti. Hvað eru pöddur samt ógeðslega? Ekki var það betra að þær eru hér úti um allt. Að standa inni í blómabeði með moldina iðandi af lífi fékk mig til að klæja um allan líkamann, líklegast eins og þér góði lesandi klæjar eflaust núna við tilhugsunina. Eitt fannst mér þó óskaplega töff og það var að í beði undir stóru tré fann ég hnetu, íkorna hnetu! Já, það þarf lítið til að gleðja litlar Karitasar.

Eftir þessa vinnu fór þreytan að segja til sín og ætlaði ég mér í smá "nap" eins og það kallast á góðri ensku en endaði á því að fara í Costco sem lýsir sér best í blöndu af Wall Mart, Bónus og Húsasmiðjunni, ef það meikar sens. Þar var allt allt allt mögulegt að fá, flest í stórum umbúðum. Þetta var svona eins og vöruhúsarheildsala. Þar var einmitt uppáhald mitt og mömmu gömlu, fullt af smökkum. Mmm... Ég elska smökk. Viti menn, hvað haldiði að Karitas hafi svo fundið þar? Mel Gibson? Nei því miður, ekki í þetta sinn. En sundbol fann ég, Speedo sundbol for only 19.99 dollars folks. Ekki slæmt.

Rétt rúmlega fimm fórum við í eitthvert Pick-Nick/Sundlaugar party sem haldið var í boði Hershey, eitthvað í sambandi við vinnu Brent's. Þar mun ég samt hafa séð eitt það fyndnasta hingað til í ferðinni. Fólk var bara eitthvað að leika sér í sundlauginni eða að borða, ég var að sjálfsögðu að borða. Allt í einu heyri ég alla þyrpast saman, byrja að klappa og kalla við einn stökkpallana. Þá var þar stúlka ein sem ætlaði að hoppa, en hætti við.. Auðvitað, vildi bara athyglina. Nee, segi svona. Afhverju þetta var fyndið veit ég ekki alveg, ég læt myndina tala sínu máli. Kannski var þetta meira svona "varst að vera þarna" atvik.

Um kvöldið hitti ég svo krakka úr kirkjunni hérna, það var farið í gegn um skyndihjálp, sem ég er bæ ðe wei búin að mastera. Get bjargað mannslífi úr tveggja kílómetra fjarlægð. Eftir það fór ég með einhverjum stelpnanna í Dollar Tree, sem er líka svooldið skemmtileg búð. Allt á dollara, hvað er það gott? Bangsar, litabækur, nammi, svitalyktaeyðar... allt saman! Haha, ég elska búðir í Bandaríkjunum, þær eru svoldið æðislegar.

Ég hef komist að því að uppáhalds setningar barnanna á þessu heimili eru: "Mommy says I can always have..." til að reyna að gabba Karitas að sjálfsögðu og svo við mömmu sína og pabba: "I never get to do.." eða "..have..". Þau eru svoldið fyndin.

Var ég líka búin að minnast á það við þig? Ykkur? Mel Gibson? Hvað ég elska húsin hérna, þau eru fáránleg flest! Elska, elska, elska þau. Þau eru eins og úr bíómynd. Lovin' it!

Ég hef einnig komist að því að það mun ekki bara vera súkkulaðið sem gerir það að verkum að ég þarf að borga fyrir tvö sæti á leiðini til baka heldur bara allur maturinn hér. Bæði er allt svo amerískt og gott og svo er það bara svo feitt. Kartöfluflögur með öllu, gos, hvítt brauð, nammi, sætabrauð.. Ekki þá bara heima, heldur eins og ef við förum eitthvað eins og Pick-Nickið í kvöld. <-- Bara svona smá innskot.

Fólkið hérna í kring er síðan óskaplega næs, vonandi að ég nái að kynnast því flestu betur.

Anywho, ðets itt for ðe næt.



Stelpan (ég kalla hana Stína) farin upp í fyrsta skiptið....



..Stína guggnaði auðvitað á því og fór aftur niður..



..nei heyrðu mig, kjellan mætt aftur á svæðið! Auðvitað hætti hún aftur við. Annars var þetta hápunktur dagsins, haha, eða eitthvað. (Er ég ljót að setja þetta inn?)


Karitas

3 comments:

Þorkell said...

Haha Hershey's Mobile? Er bara allt þarna Hershey's? :D
Já samt örugglega snilld að vera þarna og have fun ;)

Hrund said...

hahahahaha Stína er klárlega made in Hershey's! ekkert vafamál þar á ferð! og ég hló upphátt :D like like like!

Laufey said...

Hahahahaha stína beip :D