Allavega, ég kom heim laugardagskvöld frá þriggja og hálfs daga ferð til Philadelphia sem var mjög vel heppnuð ferð.
Miðvikudagskvöldið var haldið á ofur magnaða tónleika með Jack's Mannequin og The Fray, sem eru einfaldlega bara bestir í geiminum svo það fari ekki milli mála. Fólk hefur álitið mit eilítið skrítna, verandi þarna ein, sérstaklega þá strákurinn við hliðina á mér, en hverjum er ekki sama? Þetta voru The Fray. Eftir tónleikana þó beið ég í klst eftir að vera sótt, það var skemmtilegt vesen. Enn og aftur, var ég ein, í New Jersey, sem var í góðu lagi.. þangað til ég var sú eina sem var enn að bíða og örlítið vafasamir náungar í kring. Setningar eins og: "Yo, why you wanna act in front of the police man!" léku um eyru mér. Sem betur fer var lögreglan þarna þó, hún ákvað að hún vildi ekki skilja mig eina eftir.
Í Philadelphia var svo túrist-ast líkt og enginn væri morgundagurinn. Við fórum og sáum the Liberty Bell og the Indendence Hall þar sem við sáum hvar the Declaration of Independence og Constitution of USA voru undirrituð ásamt ýmsu fleiru áhugaverðu, stól og áhöld George Washington og svona sniðugt. Einnig fórum við í US Mint, stærstu klink verksmiðju heims. Þangað mátti nú ekki taka inn síma né myndavél, hví, ég veit ekki. Kannski má ekki stela hugmyndum Bandaríkjamanna af klinki? Það var labbað alveg fáránlega mikið þessa ferð, við gengum um allt, hlustuðum á sögur um hina og þessa karektera, fórum einnig í China Town, sáum þar hluti frá frá ávöxtum, lifandi kröbbum og allt að steiktum rottum. Einstaklega huggulegt.
Síðan má svo sannarlega ekki gleyma hápunkti ferðarinnar, þegar Karitas hitti hvorki meira né minna en.... Ekki Mel Gibson, nei þessi fannst Karitas merkilegra en Mel Gibson.... Neil Patrick Harris. Hver er Neil Patrick Harris spyrðu þig kannski? Ef þú veist eigi svarið við því, þykir mér fyrir því og verður þú að Google-a það karlinn/kjelli minn/mín.
Það mun vera einstaklega löng og sniðug saga á bak við þetta en ég nenni ómögulega að skrifa hana alla, til að gera langa sögu stutta (ef þú vilt heyra þá lengri er þér velkomið að spyrja við tækifæri) þá sátum við á bekk einum, að hlusta á frásögn um einhverja manneskju, hvað heldur þú að ég muni það? Þegar hópur ungra manna gengur framhjá, fremstur í flokki Neil Patrick Harris, það fór svo sannarlega ekki milli mála. Karitas horfir á hann, horfir á Sheri, snýr sér við og horfir á eftir þeim, horfir aftur á Sheri, gapir og iðar öll í skinninu og fer algjörlega í kerfi. Ó mæ, ó mæ, ó mæ var það eina sem hún gat hugsað. Síðan: Þa
Eftir þetta virðist allt frekar lítið en ég klára samt bloggið. Ís og hringekja var það sem átti sér stað seinna um daginn eftir að hafa keypt einstaka minjagripi, að sjálfsögðu. Í lok dagsins kíktum við í the King of Prussia, sem mun vera önnur stærsta verslunarmiðstöð Bandaríkjanna eða svo er mér sagt, og versluðum örlítið.
Myndir frá Philadelphia
Dagurinn í dag hefur verið rólegur, mjög svo, en það er fínt. Lappirnar eru búnar og hvíld er næst á dagskrá ásamt draumum um Neil Patrick Harris.
Karitas úr Draumalandi með bros á vör en þó sorg í hjarta.
Hví sorg í hjarta? Ég gleymdi að segja hvað mér finnst fáránlega skrítið og sorglegt að Michael Jackson sé ekki lengur meðal oss, hvað er það mikið rugl? Eins og einhver orðaði það við mig í dag: Nú veit ég hvernig fólki leið þegar Elvis Presley dó. Það er alveg satt, þetta mun svo sannarlega við svipað því get ég ímyndað mér. Ég er enn að átta mig á þessu öllu saman. Þetta er vitleysa, vitleysa segi ég þér.
En hér með kveður Karitas
No comments:
Post a Comment