Monday, June 15, 2009

Jæja, ekkert blogg næstu fimm dagana.

Þú: "Ha? Nei? Ég? Þú?" Ferð að örvænta og heldur að líf þitt sé á enda, en ó nei og ó sei, ég kem aftur að vörmu spori!

Framundan hos Karitas er fimm daga útilega sem þýðir fimm dagar án internets sem þýðir ekkert facebook, ekkert msn, ekkert skype og síðast en ekki síst, ekkert blogg, fyrr en á föstudaginn. Spennandi! Da.

Kvöldið hefur farið í að pakka, pakka og pakka. Öllu milli himins og jarðar. Allt frá venjulegum fötum, til regn ponsjós, vasaljóss og skordýrafæli, diskum, glasi og hnífapari og svo öllu þarna á milli. Síðan var stappað í mig snarli svo ég verð ekki svöng þó svo ég borði ekkert nema þetta snarl.

Allavega, bara örlítið update svona ef þið rekist inn á þetta næstu dagana og haldið að ég sé bara búin að gefast upp. Það viljum við ekki, þar sem milli nafn mitt er 'GefstEkkiUpp' og þið sem hélduð að það væri Geirþrúður, iiiii..

Kveðja, Karitas 'GefstEkkiUpp' Davíðsdóttir

Bæðavei, mamma, ég komst að því hvar þetta er: Camp Tuckahoe (Klikkaðu á nafnið)

Ciao mis amigos!

2 comments:

Mamma said...

Ég skoðaði staðinn sem þú ert að fara á og það lítur rosalega vel út. Þú sérð þetta náttúrulega ekki fyrr en þú kemur aftur en ég vona að þetta verði skemmtileg vika. Það lofar allavega góðu :) Hlakka til að heyra frá þér næsta föstudag

kveðja að norðan :)

Hrund said...

Jæja Karítas, litli skátinn bara að mæta á svæðið segiru!! vissi þetta!! við erum systur! getur bara ekkert annað verið! ætla rétt að vona að þú hitti Yogi bear þarna.. bið alveg kærlega að heilsa!


ALOHA!