Friday, June 05, 2009

Liðin heil vika.. 7 dagar.. siete días eins Spánverjinn Mikli myndi segja það. Hver er Spánverjinn Mikli muntu spyrja þig? En sjáðu til, Spánverjinn Mikli býr í barmi okkar allra.. Hvað?

Ekki nóg með það að Karitas er að verða komin með doktorsgráðu í garðyrkju heldur gerðist hún einnig handlagin heimils-Karitas í dag. (Iii, eins og handlaginn heimilsfaðir, muniði? Þættirnir? Vandræðaleeeeegt). Hvernig? Nú já, hún setti ekki aðeins saman ofur-þríhjól heldur einnig.... *trommusláttur* garðbogathingy sem ég veit ekki hvað heitir! Veeeij *allir klappa*. Eruði að spekka þetta -->

Annars var þessi dagur heldur rólegur, rólegur líkt og Mel Gibson á heitum sumardegi. Komið kannski gott af Mel Gibson? Nje, aldrei!

Ég er búin að vera að kynna mér aðeins bandið 'Dave Matthews Band' þar sem planið er, hopefully, 7, 9, 13 að fara á tónleika með kjepps því hver er einnig að spila sem gestur á tónleikunum?

Leikur, þið giskið. Fáið 3 gisk!

*gisk númer eitt* líklegast ekki rétt

*gisk númer tvö* ert að verða heitari

*gisk númer þrjú* það er rétt!

..Jason Mraz (ef þú giskaðir ekki á Jason Mraz, þá ertu heldur léleg/ur í þessum leik). En hvað er það annars gaman? Feis Hrund, ég fæ vonandi líka að sjá hann! (Þó svo ég missi af Kings of Leon, Killers, Katy Perry, Lilly Allen, osfrv.... *grát*).

Orðin; actually, like, uhm, oh yeah (með ýmsum tónum) munu klárlega vera orð ferðarinnar. Ég virðist segja þessi orð í öðru hverju orði.. eða eitthvað. En samt svona í alvöru, það er næstum orðið vandræðalegt. Fólkið hér hugsar eflaust með sér í hvert skipti sem ég opna munninn: "Kann hún engin önnur orð? Greyið stelpan." Hvað er það slæmt?

Jæja, þetta blogg mun vera í styttra lagi en það er líka okay. Vonandi lendi ég í einhverju ofur sem ég get bloggað um á næstu dögum, kannski framhald Stínu. "The return of the Stína."

Sneak-Peak á sögu ofur-þríhjólsins!


Karitas

1 comment:

Hrund said...

hahahaha vissi að þú myndir reyna að feisa mig KArítas!! haha elska þessi blogg þín! fékk alveg riiiisa skammt af þeim núna, er ekkert búin að fara á neitð í viku eða eitthvað röööögl sko!

éttu 13 hershey's fyrir mig!!

=D